Nautgriparækt var hafin á Vatnsenda árið 2015 en þá voru liðin um 40 ár síðan kúabúskap var hætt á Vatnsenda.
Nautin eru í húsi sem byggt var 2001 og var þá ætlað hestum og sauðfé, því var breytt svo það henti nautgripum.
Hluti nautgripanna er hafður úti í mjög svo grösugum högum á sumrin og á veturna eru þeir heima við þar sem er rennandi vatn, bogahús sem þau geta farið inní og er gefið hey.
